Hótelið í þorpinu

HVÍLDARDAGAR Í FLATEY 22-26 MAÍ 2013 - Hefur því miður verið aflýst !

SJÁ NÁNAR HÉR

 

hotel_flatey-frontÁ sumrin slær hjarta Breiðafjarðar í plássinu í Flatey, gamla kauptorginu í þorpinu miðju. Húsin sem umkringja gamla verslunarstaðinn í Flatey eru timburhús frá gullöld eyjarinnar. Þau hafa nær öll verið færð til upprunalegs útlits svo hvergi annars staðar á landinu er hægt að ganga um þorp þar sem ævintýralegt svipmót gamla tímans hefur haldist jafn vel.

Hótel Flatey er í þremur uppgerðum pakkhúsum við Grýluvog. Gistiaðstaðan er í Eyjólfspakkhúsi og í Stóra-Pakkhúsi. Veitingastofan er hins vegar í pakkhúsi sem er betur þekkt sem Samkomuhús Flateyjar. Í því húsi hefur Vesturlandið blandað geði við Vestfirði frá örófi alda á samkomum sem eru ógleymanlegar í hugum margra.

Í veitingastofunni eru bornar fram kræsingar og lostæti undir stjórn Ingibjargar Pétursdóttur sem rekur veisluþjónustuna Mensu. Innblástur í matseðilinn verður undantekningarlaust sóttur í Breiðafjörðinn.

Hótelið opnar fyrir almenna gesti þann 26.maí og lokum 25. ágúst sumarið 2013.

Nýtt hjá Hótel Flatey - Hvíldardagar - 22 - 26 maí 2013. Fullkomin slökun og tímaleysi. Nánari upplýsingar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.